Yfir 20 ára reynsla af launa- og mannauðslausnum

Launa- og mannauðslausnir sem virka í raunverulegum rekstri

Reynsla úr bæði einkageira og opinberum rekstri við innleiðingar, samþættingar og þróun launa- og mannauðslausna.

Hef starfað sem launasérfræðingur, ráðgjafi og vörustjóri og þekki vel þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir, frá daglegri launavinnslu til innleiðinga, samþættinga og þróunar kerfa sem þurfa að styðja raunverulegan rekstur.

  • Launasérfræðingur, ráðgjafi og vörustjóri.
  • Reynsla úr bæði einkageira og opinberum rekstri.
  • Innleiðingar, samþættingar og þróun kerfa.
  • Skýrari ferlar og betri nýting kerfa.

Þjónusta

Góð kerfanýting byrjar á skýrum ferlum og réttri nálgun.

01

Greining

Greining á ferlum, upplýsingaflæði og kerfanýtingu með áherslu á einfaldara vinnulag, betri yfirsýn og aukið rekstraröryggi.

02

Ráðgjöf

Ráðgjöf byggð á reynslu úr launavinnslu, innleiðingum og þróun kerfa sem þurfa að styðja skilvirkt og áreiðanlegt vinnulag.

03

Innleiðing

Innleiðing launa- og mannauðslausna með áherslu á skýra ferla, örugga framkvæmd og góða nýtingu kerfa frá fyrsta degi.

Nálgun

Lausnir þurfa að virka í daglegum rekstri

Ein stærsta áskorunin sem fyrirtæki standa frammi fyrir í dag er ekki endilega val á kerfum heldur hvernig þau eru nýtt til fulls. Því betur sem launa- og mannauðskerfi eru uppbyggð og viðhaldið, því betri upplýsingar, yfirsýn og stuðning fá fyrirtæki út úr þeim. Launa- og mannauðskerfið er oft hjartað í rekstrinum. Það tengir saman önnur lykilkerfi og heldur utan um mikilvægt upplýsingaflæði þvert á fyrirtækið. Góð innleiðing snýst sjaldnast eingöngu um kerfið sjálft. Hún byggist á því að ferlar, upplýsingaflæði og dagleg vinnubrögð styðji skýrt og áreiðanlegt vinnulag. Með reynslu úr launavinnslu, ráðgjöf og vörustýringu nálgast ég verkefni með þarfir rekstursins að leiðarljósi, þar sem fólk, ferlar og kerfi þurfa að vinna vel saman til að skapa betri yfirsýn og skilvirkari vinnubrögð.

Samband

Hafðu samband

Sendu okkur nokkrar línur og við svörum eins fljótt og við getum.